OneFlor Europe
Við bjóðum hágæða vínylparket frá One Flor Europe til okkar viðskiptavina.
Fyrirtækið býður upp á mjög breiða lita pallettu ásamt því að bjóða upp á efni í öllum þykktum, bæði smellt og niður límt.
Gólfefni » Vínylparket
Vínylparket er eitt vinsælasta og mest selda gólfefnið á heimili, verslanir og vinnustaði. Vínylgólf eru hljóðlaus, vatnsheld, sterk og viðhaldsfrí gólf sem henta vel þar sem mikið álag er á gólfi. Vínylparket hentar einstaklega vel á heimili sem eru með gæludýr.
Við bjóðum hágæða vínylparket frá One Flor Europe til okkar viðskiptavina.
Fyrirtækið býður upp á mjög breiða lita pallettu ásamt því að bjóða upp á efni í öllum þykktum, bæði smellt og niður límt.
Við bjóðum hágæða vínylparket frá OneFlor Europe til okkar viðskiptavina. Fyrirtækið býður upp á mjög breiða litapallettu ásamt því að bjóða upp á efni í öllum þykktum, bæði smellt og niður límt.
OneFlor Europe vínylparketið er með náttúrulegt útlit. Við bjóðum það bæði niður límt í 2mm, 2,5mm og 3mm stöfum og einnig í 4,5mm, 5mm og 6mm í smellt með áföstu undirlagi. Efnið er úr endurunnu efni og er viðhaldsfrítt og vatnshelt einnig má leggja það yfir gólfhita.
Smellta efnið með áfasta undirlaginu má leggja yfir flísar og önnur gólfefni. Misfellur í gólfi mega vera allt að 4-5mm. Smellta vínylparketið frá OneFlor er með 21db og 22db hljóðvist og hentar það því einstaklega vel í fjölbýlishúsum og þar sem hljóðkröfur eru miklar.
Í meðfylgjandi bæklingi er að finna handhægar leiðbeiningar sem mikilvægt er að lesa vel áður en hafist er handa við að leggja niður smellt vínylparket.
RIGID 30 XL / CLASSIC 30 XL
frá kr. 4.990 – 7.990
Workshop ECO55
Kr. 5.990 – 8.990
Workshop ECO55 XL
Kr. 6.690 – 9.690
Loom+ vínylflísar
Kr. 11.900
Til að sjá allt vöruúrvalið okkar bjóðum við þér að koma til okkar í verslun okkar í Selmúla þar sem við bjóðum upp á persónulega ráðgjöf og fyrsta flokks þjónustu frá faglærðu starfsfólki.
Vantar þig innblástur þegar kemur að því að velja nýtt gólfefni? Oneflor býður upp á gagnvirkt hönnunarforrit þar sem hægt er að máta ólík gólfefni á rýmið þitt.