fbpx

Veggfóður > Arte

Arte

Veggfóðrið frá Arte er hágæða efni og með ótrúlegum mynstrum. Arte  er belgískt fyrirtæki þar sem hönnun, litir, form og gæði skapa einstakan heim. Arte sérhæfir sig í veggfóðri og veggmyndum á staka veggi á heimili ásamt veggfóðri fyrir hótel og veitingastaði.

Arte

Veggfóðrið frá Arte er hágæða efni og með ótrúlegum mynstrum.

Arte  er belgískt fyrirtæki þar sem hönnun, litir, form og gæði skapa einstakan heim.

Arte

Veggfóður hefur verið að koma sterkt inn undanfarin ár hjá hönnuðum og arkitektum og verður sífellt vinsælla inn á heimili. Sérstaklega á staka veggi eins og við rúmgafla í svefnherbergjum, sem bakgrunn í stofum og auðvitað á heil herbergi og ganga til að setja hlýleika og fallegt útlit inn í rými.

Arte framleiðir veggfóður fyrir fyrirtæki ens og Moooi og þar er hönnun sett í fyrsta sæti ásamt frábærum efnum. Úrvalið af veggfóðri, bæði heimilis og hótel veggfóður er ótrúlegt og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Sjón er sögu ríkari þegar kemur að hönnun frá Moooi.

Arte notar efni eins og Hersía striga, hamp og bambus, silki og vínyl.

Arte sérhæfir sig í veggfóðri og veggmyndum á staka veggi á heimili ásamt veggfóðri fyrir hótel og veitingastaði.

Hótel veggfóður er níðsterkt og þolir vel að vera þvegið og blettahreinsað. Ástæðan fyrir því að hótel eru almennt veggfóðruð er að líftími veggja með góðu hótel veggfóðri er 15-20 ár, en að öllu jöfnu þarf að endurmála eftir 4-7 ár. Það gefur þvi augavleið að hótel og gistiheimili sem eru veggfóðruð með góðu veggfóðri þurfa mun minna viðhald en máluð herbergi og er því mikill sparnaður í rekstrarkosnaði. Við höfum veggfóðrað heimili, stofnanir og hótel í yfir 40 ár og getum því vel leiðbeint með það sem hentar hverju verkefni fyrir sig.

Til að sjá allt vöruúrvalið okkar bjóðum við þér að koma til okkar í verslun okkar í Selmúla þar sem við bjóðum upp á persónulega ráðgjöf og fyrsta flokks þjónustu frá faglærðu starfsfólki.

Bæklingar

Lookbook Spring 2022
Décors & Panoramiques Spring 2022
Moooi Wallcovering Memento Mooi
Lookbook Essentials

Gallerí