One Floor Europe vínylparket

Fjölbreyttir litir og efni í öllum þykktum, bæði smellt og niður límt.

Persónuleg ráðgjöf og fyrsta flokks þjónusta

Gólfefni, teppi og veggfóður í miklu úrvali

Á vefsvæði okkar getur þú séð brot af því besta sem við bjóðum upp á í gólfefnum, teppum og veggfóðri. Í framhaldinu er upplagt að líta við í verslun okkar í Selmúla þar sem við bjóðum upp á persónulega ráðgjöf og fyrsta flokks þjónustu frá faglærðu starfsfólki.

One Floor Europe vínylparket

Fjölbreyttir litir og efni í öllum þykktum, bæði smellt og niður límt.

Vínylparket

Vínylparket er orðið eitt mest selda gólfefnið á heimili, verslanir og vinnustaði. Vinylgólf eru hljóðlaus, sterk og viðhaldsfrí gólf sem eru frábær í þrifum. Vínylparket hentar einstaklega vel á heimili sem eru með gæludýr.

Við bjóðum hágæða vínylparket frá One Flor Europe. Fyrirtækið býður upp á mjög breiða lita pallettu ásamt því að bjóða upp á efni í öllum þykktum, bæði smellt og niður límt.

Veggfóður

Við höfum sérþekkingu á veggfóðri og bjóðum upp á þúsundir mynstra og lita frá stærstu framleiðendum Evrópu, eins og Élitis, Arte og Masureel, sem sérhæfa sig í veggfóðri og veggklæðningum fyrir heimili, vinnustaði, hótel og veitingastaði.

Í dag telur veggfóðursafnið okkar yfir 10.000 mynstur og liti í náttúruefnum, eins og raffia, sisal, hör eða silki, ásamt breiðu úrvali af vínyl veggfóðri og heilmyndum.

Ullarteppi

Við seljum ein vönduðustu ullarteppin á markaðnum og bjóðum fyri 80 tegundir í mörgum litum.

Ullin er nýsjálensk og evrópsk. Ull er sterk og með náttúrulega óhreinindavörn og henta vel hvort heldur sem er inn á heimili eða vinnustaði. Teppin eru framleidd í Hollandi og ullin er rekjanleg frá bónda í teppi.

Mottur

Mottur

Við sérsníðum og földum mottur eftir máli úr öllum okkar teppategundum fyrir bæði heimili og fyrirtæki.

Hvort sem þig langar í hreina ull, náttúru sísal, viscose eða flauelsmjúkt efni, við eigum þetta allt til. Mögulega mesta úrval landsins af hágæða gólfteppum.

Teppi á stigahús

Við bjóðum upp á hágæða teppi á stigahús og heimili ásamt fjölbreyttu úrvali af inngangs mottum sem henta vel fyrir bæði heimili og vinnustaði.

Teppaflísar

Teppaflísar eru vinsæll valkostur fyrir skrifstofur, hótel og verslanir. Þær eru auðveldar í þrifum og veita sérstaklega góða hljóðvist sem bætir vinnuumhverfið.

Shaw Contract og Paragon eru okkar stærstu birgjar en einnig erum við með „grænar“ teppaflísar frá Infloor sem eru Blue Angel vottaðar.

Flotuð og lökkuð gólf

Við höfum sérhæft okkur í flotuðum og lökkuðum gólfum. Við köllum þessi gólf sjónflotuð gólf.

Sjónflotuð gólf eru falleg og mjög vinsæl gólf sem við notum lakk tækni til að gera endanlegt gólfefni úr floti. Einnig gerum við gólf fyrir vöruhús, bílskúra og sambærilega fleti sem krefjast efna sem eru með harðara yfirborði.

Gólflistar

Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval af gólflistum fyrir bæði heimili og vinnustaði.

Gólflistar eru mikilvægir til að fela þenslufúgur við veggina. Við bjóðum MDF lista í ýmsum útgáfum sem koma hvítir en hægt er að mála.

Innblástur dagsins
Veggfóður x Textíll
Til hamingju með þjóðhátíðardaginn 🇮🇸

Opnunartími yfir hátíðar

Opið
Vikuna 16. – 20. desember 09:00 – 17:00

Lokað
Frá og með 21. desember til og með 2. janúar 2025

Nýtt ár
Opnum glöð á nýju ári föstudaginn 3. janúar.