Stigahús, mottur og inngangsmottur

Stigahús, mottur og inngangsmottur

Við bjóðum upp á hágæða teppi á stigahús ásamt fjölbreyttu úrvali af inngangs mottum og sérsniðnum mottum sem henta vel fyrir bæði heimili og vinnustaði.

  • Stigahús
    Frá danska teppaframleiðandanum Fletco Carpets bjóðum við upp á Loopy Home og Ex Dono línurnar. Teppin frá hollenska framleiðandanum Belakos eru hönnuð fyrir mikla umferð og má leggja yfir gólfhita. Þau eru Blue Angel vottuð og má nota í Svansvottuð hús.
  • Inngangsmottur
    Við bjóðum fjölbreytt úrval af inngangsmottum frá Fletco og Paragon sem henta vel fyrir bæði heimili og vinnustaði.
  • Kókosmottur
    Kókosmotturnar okkar eru unnar úr náttúrlegum trefjum kókoshnetunnar og hafa verið framleiddar frá 1925 hjá hollenska framleiðandanum Rinos.
  • Gólfmottur eftir máli
    Við sérsníðum mottur eftir máli úr öllum okkar teppategundum, hvort heldur sem er úr 100% hreinni ull eða úr vönduðum eiturefnalausum gerviefnum.