fbpx

Teppi & mottur > Heimilisteppi

Heimilisteppi frá Fletco

Fletco hefur framleitt teppi í Danmörku í yfir 70 ár og eru þau margverðlaunuð. Öll framleiðsla Fletco miðar að því að framleiða teppi sem eru framleidd á heilbrigðan hátt og án eiturefna. Ekkert PVC eða þalat er í botni teppanna með gúmmí undirlaginu sem gerir þau fullkomlega örugg yfir gólfhita. 

Heimilisteppi á gúmmí botni eins og Bichon, Florenz og Fluffy þarf ekki að falda og ekki að heillíma eða setja á undirlag. Öll teppi á gúmmíbotni er hægt að skera í mottur eftir máli.

Fletco heimilisteppi

Heimilisteppi frá Fletco og flatofin teppi henta einstaklega vel inn á heimili.

Teppin hafa Life Balance vottun sem tryggir heilbrigða framleiðslu og heilsufarslegan ávinning og eru örugg og mælt með þeim fyrir fólk með ofnæmi og öndunarfærasjúkdóma. 

Öll heimilisteppi er jafnframt hægt að fá í sérsniðnum mottum eftir máli.

Hvernig veljum við teppi á heimilið?

Þrjár tegundir af teppum – Hvað hentar þér?

Við val á heimilisteppi þarf að hafa í huga hvað tilgangi teppið á að þjóna. Ertu að hugsa um teppi á milli hæða þar sem umgangur er mikill eða ertu að hugsa um teppi í svefnherbergi, fataherbergi eða stofu?

Þegar þú velur teppi inná heimili þá á það að auka vellíðan og bæta loftgæði og hljóðvist. Danska fyrirtækið Fletco hefur framleitt teppi í yfir 70 ár og eru þeir mjög framarlega þegar kemur að umhverfisvænni hönnun. Þeir bera umhverfismerkið Life Balance sem staðfestir heilbrigða framleiðslu og heilsufarslegan ávinning. En astma og ofnæmissamtök mæla með þannig teppum inná heimili þar sem ofnæmi og öndunarsjúkdómar eru til staðar.

Teppin eru með frábærri óhreinindavörn og taka í sig allt fínryk sem svífur um og halda því þar þangað til það er ryksugað. Þrjár mismunandi tegundir af mjúkum teppum og yfir 40 fallegir litir gera valið auðvelt. Veldu gæðateppi inná heimilið, það margborgar sig.

Flatofin teppi

Sisalike, Mino og Pinoflet eru klassísk flatofin teppi sem líkja eftir sisal/ kókos teppi en unnin úr sterku gerviefni. Flatofið teppi hentar einstaklega vel á stiga og önnur rými þar sem umgengni er mikil. Það er mjög slitsterkt og er auðvelt í þrifum.Teppið getur farið beint ofan á gólfhita. Teppin koma í fimm mismunandi mynstrum og áferð og sjö fallegum náttúrulegum litum.

Mottur

Öll heimilisteppi er jafnframt hægt að fá í sérsniðnum mottum eftir máli. 

Lista verð per fermeter

  • Pinoflet kr. 8,900
  • Sisalike kr. 8,900
  • Mino kr. 8,900
  • Nordic Living Home kr. 11,500
  • Nove kr. 13,900
  • Bichon home kr. 14,900
  • Fluffy kr. 15,900
  • Bichon kr. 16,900
  • Florenz kr. 18,900

Fletco Modern Art Collection

Vörulínur

Pinoflet

Pinoflet er flatofið vegg-í-vegg teppi sem hentar vel á heimili. Teppið er með breiðum strúktúr og er fáanlegt í sjö klassískum litum sem eru prýði inn á hvert heimili.

Pinoflet lista verð: kr. 8,900 fm

Sisalike

Sisalike er flatofið vegg-í-vegg teppi sem hentar vel á heimili. Í boði eru sjö klassískir litir.

Sisalike lista verð: kr. 8,900 fm

Mino

Flatofna vegg-í-vegg teppið Mino hefur nútímalega vefnaðarbyggingu. Það kemur vel út í hvaða svefnherbergi, stofu eða heimaskrifstofu sem er og það það bætir hljóðvist í rýminu. Mino kemur í sjö norrænum litum og hentar vel á venjuleg gólf, gólf með gólfhita og í stiga.

Mino lista verð: kr. 8,900 fm

Nordic Living Home

Hið stílhreina Nordic Living Home teppi kemur í fallegum litum sem gefur einstakt, norrænt útlit. Teppið er úr 100% PA og því afar endingargott. Nordic Living Home er fáanlegt í sex fallegum litum sem allir sæma sér vel inni á heimilinu þínu. 

Nordic Living Home lista verð: kr. 11,500 fm

Nove

Ofið fiskabeinsmynstur nýju Nove-línunnar gefur gólfinu öðruvísi og einstakan svip. Nove er fáanlegt í 14 frábærum litum.

Nove lista verð: kr. 13,900 fm

Bichon home

Bichon Home er afar mjúkt og einstakt efni sem lítur næstum út eins og velúr. Ef þú ert að leita að mjúku og notalegu andrúmslofti í stofunni eða svefnherberginu ættir þú að velja Bichon. Hægt er að velja á milli sex glæsilegra lita.

Bichon lista verð: kr. 14,900 fm

Fluffy

Fluffy er mjúkt gólfteppi sem er fáanlegt í 16 kraftmiklum litum sem færa orku inn í hvaða herbergi sem er. Eitt af sérsniðnu mynstrunum okkar, til dæmis fiðrildið, blómið eða skýið, mun án alls sæma sér vel í hvaða barnaherbergi sem er.

Fluffy lista verð: kr. 15,900 fm

Bichon

Bichon er mjög mjúkt gólfteppi sem lítur næstum út eins og velúr. Ef þú ert að leita að mjúku og notalegu andrúmslofti í stofunni eða svefnherberginu ættir þú að velja Bichon. Litapallettan samanstendur af 24 snjöllum og töff litum, þar á meðal muntu örugglega finna þinn uppáhalds.

Bichon lista verð: kr. 16,900 fm

Florenz

Florenz er mjúkt gólfteppi sem er fáanlegt í 16 fallegum litum.

Florenz lista verð: kr. 18,900 fm