Sérstaða Arte
Arte sérhæfir sig í veggfóðri og veggmyndum á staka veggi á heimili ásamt veggfóðri fyrir hótel og veitingastaði.
Veggfóðrið frá Arte er hágæða efni og býður upp á ótrúlegt úrval mynstra. Arte er belgískt fyrirtæki þar sem hönnun, litir, form og gæði skapa einstakan heim með stórkostlegum mynstrum.
Arte sérhæfir sig í veggfóðri og veggmyndum á staka veggi á heimili ásamt veggfóðri fyrir hótel og veitingastaði.
Með ástríðu fyrir fágaðri innanhússhönnun, úrvals efnum og handverki er Arte orðin einn fremsti framleiðandi hágæða veggfóðurs fyrir kröfuharða arkitekta, hönnuði og alla með brennandi áhuga á fegurð. Handverk, sköpunargáfa og nýsköpun er hluti af DNA mengi Arte.
Við bjóðum yfir 1800 mynstur og liti í veggfóðri og veggmyndum frá Arte ásamt breiðu úrvali af veggfóðri fyrir hótel og veitingastaði. Hér getur þú skoðað veggfóðurs línur Arte en við hvetjum þig til að koma við í búðinni okkar, fletta bókum og finna áferðir sem eiga engan sinn líka.
Hjá okkur starfa fagmenntaðir veggfóðrara sem geta annast veggfóðrun sé þess óskað.