Veggfóður

Veggfóður - Heimur fagurkera

Við höfum yfir 40 ára reynslu og sérþekkingu á veggfóðri og bjóðum upp á þúsundir mynstra og lita frá stærstu framleiðendum Evrópu, eins og Élitis, Arte, Masureel og Phillip Jeffries. Hvort sem er fyrir heimili, hótel eða vinnustaði. Í dag telur veggfóðursafnið okkar yfir 10.000 mynstur og liti í náttúruefnum, eins og raffia, sisal, hör eða silki, ásamt breiðu úrvali af vínyl veggfóðri og heilmyndum. Hjá okkur starfa eingöngu faglærðir veggfóðrara við uppsetningu á veggfóðri og með sérþekkingu á viðkvæmari efnum.