Forsíða » Masureel - Veggfóðurslínur » Page 2
Masureel – Veggfóðurslínur
Rætur Masureel fjölskyldunnar liggja í hjarta Flæmingjalands og ná aftur til 16 aldar. Með ríka menningararfleið, ástríðu fyrir handverki, hönnun og myndlist ásamt djúpri virðingu fyrir náttúrunni sækja hönnuðir Masureel innblásturinn. Útkoman er safn veggfóðurs þar sem mynstur og litir, ásamt náttúruefnum mynda fallega heild.
Við bjóðum yfir 1500 tegundir af veggfóðri og veggmyndum sem hvert um sig koma í allt að 15 litum, ásamt breiðu úrvali af veggfóðri fyrir hótel og veitingastaði.
Hér getur þú skoðað þær línur sem við bjóðum upp á frá Masureel, en við hvetjum þig jafnframt til að koma við í búðinni okkar, fletta bókum og finna áferðir sem eiga engan sinn líka. Hjá okkur starfa jafnframt fagmenntaðir veggfóðrarar sem geta annast veggfóðrun sé þess óskað.