Gólfefni > Vínylparket

Vínylparket

Vínylparket er eitt vinsælasta og mest selda gólfefnið á heimili, verslanir og vinnustaði. Vínylgólf eru hljóðlaus, vatnsheld, sterk og viðhaldsfrí gólf sem henta vel þar sem mikið álag er á gólfi. Vínylparket hentar einstaklega vel á heimili sem eru með gæludýr.

OneFlor Europe & ShawContract

Við bjóðum hágæða vínylparket frá One Flor Europe og ShawContract til okkar viðskiptavina.

OneFlor Europe býður upp á mjög breiða lita pallettu ásamt því að bjóða upp á efni í öllum þykktum, bæði smellt og niður límt.

Frá ShawContract bjóðum við upp á PVC frían vínyl.

OneFlor Europe

Við bjóðum hágæða vínylparket frá OneFlor Europe til okkar viðskiptavina. Fyrirtækið býður upp á mjög breiða litapallettu ásamt því að bjóða upp á efni í öllum þykktum, bæði smellt og niður límt.

OneFlor Europe vínylparketið er með náttúrulegt útlit. Við bjóðum það bæði niður límt í 2mm, 2,5mm og 3mm stöfum og einnig í 4,5mm, 5mm og 6mm í smellt með áföstu undirlagi. Efnið er úr endurunnu efni og er viðhaldsfrítt og vatnshelt einnig má leggja það yfir gólfhita.

Smellta efnið með áfasta undirlaginu má leggja yfir flísar og önnur gólfefni. Misfellur í gólfi mega vera allt að 4-5mm. Smellta vínylparketið frá OneFlor er með 21db og 22db hljóðvist og hentar það því einstaklega vel í fjölbýlishúsum og þar sem hljóðkröfur eru miklar.

One Flor bæklingar

ShawContract

Við bjóðum einnig upp á PVC frían vínyl frá ShawContract. 

Ertu að fara að leggja smellt vínylparket?

Hér má finna handhægar leiðbeiningar sem mikilvægt er að lesa vel áður en hafist er handa við að leggja niður smellt vínylparket. 

OneFlor

Mercury

ShawContract

Listaverð á vínylparketi

  • Home 30 Concept
    kr. 4.490 – 8.590
  • RIGID 30 XL / CLASSIC 30 XL
    kr. 4.990 – 8.590
  • Acoustic Eco 55
    kr. 7.690
  • Mercury 0,5 XL
    5.990
  • Workshop ECO 55
    kr. 5.990 – 9.590
  • Workshop ECO55 XL
    Kr. 6.690 – 10.290
  • Contract 70 Ecolock
    kr. 10.900
  • Contract Ecolay 70 Loose-Lay
    kr. 10.290
  • Loom+ vínylflísar
    Kr. 17.900

Gagnvirkt hönnunarforrit frá OneFlor

Vantar þig innblástur þegar kemur að því að velja nýtt gólfefni?

Oneflor býður upp á gagnvirkt hönnunarforrit þar sem hægt er að máta ólík gólfefni á rýmið þitt.