fbpx

Gólfefni > Harðparket

Harðparket

Harðparket er frábært gólfefni sem þolir mikið álag. Við bjóðum harðparket frá Egger sem er einn stærsti harðparketframleiðandinn í Evrópu. Mikil þróun hefur átt sér stað undanfarin ár eins og sést í afar raunvörulegu útliti, lengri plönkum og hljóðlátari gólfum. Þegar harðparket er valið þá skiptir máli að plankarnir séu langir og breiðir til að gólfið fái þann klassa sem það á skilið.

Egger harðparket

Við bjóðum harðparket frá Egger sem er einn stærsti framleiðandi að harðparketi í Evrópu. Harðparket er frábært gólfefni sem þolir mikið álag. 

Til að sjá allt vöruúrvalið okkar bjóðum við þér að koma til okkar í verslun okkar í Selmúla þar sem við bjóðum upp á persónulega ráðgjöf og fyrsta flokks þjónustu frá faglærðu starfsfólki.

Egger harðparket

Egger er með eina bestu slit og rispuvörn á sínum efnum enda hafa þeir áralanga reynslu í framleiðslu á harðparketi.

Mikil þróun hefur átt sér stað undanfarin ár eins og sést í afar raunvörulegu útliti, lengri plönkum og hljóðlátari gólfum. Þegar valið er harðparket þá skiptir máli að plankarnir séu langir og breiðir til að gólfið fái þann klassa sem það á skilið.

Í Long línunni bjóðum við breiðasta harðparketið á markaðnum. Það er 10mm þykkt, 24,6 cm breitt og  2 metra langt. Það gefur auga leið að þannig plankar gera gólfið mun fallegra. Glæsilegt útlit er það sem við erum alltaf að leitast við að bjóða okkar viðskiptavinum og það tekst afar vel í þessum stóru og veglegu plönkum. Long línan kemur í fimm glæsilegum litum.

Lista verð

Egger Long 5.900 kr. fm2.

Harðparketið okkar er á frábæru verði og við erum með efnið til sýnis í verslun okkar í Selmúla. Komdu og fáðu tilboð í gólfið þitt.

Sýndarveruleikarými

Viltu máta gólfefnin við heimilið þitt?
Hér getur þú farið inn í sýndarveruleikarými þar sem þú getur mátað gólfefnin á stofuna þína.